Ókeypis sniðmát og rafræn kosning

Gerðu bekkjarsáttmála á 2 mínútum

Slepptu löngum foreldrafundum. Notaðu tilbúin sniðmát til að semja lýðræðislegar reglur um skjátíma, afmælisgjafir og samfélagsmiðla.

Nafnlaus kosning

Foreldrar greiða atkvæði nafnlaust. Þetta tryggir að allir þori að segja sína raunverulegu skoðun án þrýstings.

Tilbúin sniðmát

Þú þarft ekki að finna upp hjólið. Við erum með spurningar um Roblox, Snapchat, gjafaverð og fleira sem þú getur notað strax.

Skýr niðurstaða

Kerfið tekur saman niðurstöðurnar og býr til fallegan sáttmála sem hægt er að senda á alla foreldra.

Hvað er í sáttmálanum?

Afmælisgjafir (verðþak)
Samfélagsmiðlar (aldurstakmark)
Skjátími og netleikir
Boðsreglur í afmæli
Heimsóknir og útivist

Algengar spurningar um bekkjarsáttmála

Er þetta virkilega nafnlaust?

Já. Sem bekkjarfulltrúi sérð þú bara hversu margir kjósa hvað, en aldrei hver kaus hvað.

Kostar að nota þetta?

Nei, bekkjarsáttmálinn er hluti af grunnkerfi Bekkjarins og er alfarið ókeypis.

Hvað ef foreldrar eru ósammála?

Mælt er með að fylgja meirihlutanum en hafa svigrúm. Sáttmálinn er viðmið, ekki lög.

Gerðu bekkjarsáttmála á 2 mínútum

Stofna bekk og byrja kosningu